Hraunbraut 6 , 805 Selfoss
61.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
100 m2
61.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
22.500.000

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Nýjar raðhúsaíbúðir í nýjum þéttbýliskjarna sem rís í Grímsnesi.

Lögheimilisskráning, full þjónusta sveitarfélags, engir biðlistar eftir leikskólaplássi, 15 min akstur á Selfoss, 45 min til Reykjavíkur.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax!

Hraunbraut 6 er raðhúsalengja með 5  glænýjum íbúðum sem afhentar verða í mars 2024 fullbúnar að innan sem utan með grófjafnaðri lóð.

Stærð á hverri íbúð er um 100 fm og er hér um að ræða íbúð 01 0103 sem er miðjuíbúðin í lengjunni.

Íbúðirnar eru allar fjögurra herbergja og gerir skipulag skv. teikningum ráð fyrir forstofu, þremur rúmgóðum svefnherbergjum, þvottahúsi, baðherbergi og opnu rými með eldhúsi, stofu og borðstofu.

Gert er ráð fyrir rými fyrir tveimur bílastæðum framan við hverja íbúð í húsinu og skilast hver íbúð fullbúin að utan með grófjafnaðri lóð. Vönduð lituð bárujárnsklæðning er að utan, vandaðir gluggar með lituðu áli og gólfhiti er í botnplötu hússins. Að innan verður hverri íbúð skilað fullbúinni með öllum innréttingum og gólfefnum. 

Stutt samantekt á skilalýsingu, sjá nánar skilalýsingu á www.hraunbraut.com og má þar sjá einnig myndband sem gefur hugmynd að útliti að innan:
  • Eldhús - Kvik eldhúsinnrétting, Grohe blöndunartæki, spanhelluborð, ofn og vifta frá Rafha.
  • Baðherbergi - Kvik innrétting, flísalagt gólf og hluti veggja, 90 x 90 cm þröskuldarlaus sturta með öryggisgleri, vegghengt klósett og Grohe blöndunartæki eða sambærilegt.
  • Stofa/borðstofa/svefnherbergi - Parket og innihurðir frá Birgisson, 2,7 m lofthæð, svalahurð úr stofu út í garð, fataskápar frá Kvik og innfelld led lýsing í öllum rýmum. 
  • Þvottahús - innrétting frá Kvik og flísar á gólfi.
  • Lóð og bílastæði - skilast grjófjafnað.
  • Eignin skilast fyrir útgáfu afsals með úttekt á byggingarstig 6, fullgerð án lóðarfrágangs.
  • Skilalýsing er í samræmi við upptalningu á heimasíðu www.hraunbraut.com.
Raðhúsið er staðsett í hverfinu Borgir, Grímsnesi. Þar er að finna frábæra nýlega sundlaug, kjörbúð, skóla/leikskóla og aðra þjónustu. Hverfið er í mikilli uppbyggingu og mun fjöldi íbúða á svæðinu tvöfalldast á næsta ári. Við hliðina á raðhúsinu er nýbúið að útbúa leikvöll fyrir börn, sjá frétt á heimasíðu sveitarfélags hér.
 
Einingarnar í raðhúsin eru smíðaðar af hinu rótgróna húsasmíðafyrirtæki SG hús á Selfossi, sem hefur yfir 50 ára reynslu í smíði húsa fyrir íslenskar aðstæður.

Hafið samband við fasteignasala til að fá nánari upplýsingar og til að bóka skoðun.
 
Upplýsingar gefa: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.