Hraunbraut 37 , 800 Selfoss
54.800.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
155 m2
54.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
6.600.000

Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:

Skemmtilegt nýtt timbur parhús í hinum ört stækkandi byggðarkjarna að Borg  í Grímsnesi.
Húsið afhendist rúmlega fokhelt að innan, þar sem búið er að einangra, plasta og setja rafmagsngrind og  tilbúið að utan. (B4) Mögulegt er að fá eignina afhenta lengra komna eftir nánara samkomulagi.
Seljandi getur boðið uppá viðbótarlán fyrir mismun á kaupverði og bankaláni til allt að sex mánaða frá kaupsamningi.
Afhending getur verið viðkaupsamning
Bárujárn er á þaki og stallað járn er á útveggjum.
Skv. teikningu skiptist eignin í :
Forstofu
Stofu/eldhús/alrými
3 stk svefnherbergi
þvottahús
Baðherbergi og 
Bílskúr
Húsið stendur hátt og er með miklu útsýni til suðurs.

Byggðarkjarninn að Borg er ört stækkandi, enda í miðju uppsveita Árnesssýlu og við "Gullna hringinn".
Þar er að finna frábæra nýlega sundlaug, kjörbúð, skóla (með gjaldfrjálsu mötuneyti ) og  leikskóla, sem tekur inn börn frá 12 mánaða aldri. (Fullt gjald fyrir 8,5 klst vistun er 24.451 kr á mánuði) 
Rétt hjá eigninni er nýbúið að útbúa glæsilegan leikvöll fyrir börn sem og sleðabrekku.
Í nágrenni Borgar eru m.a. golfvellirnir að Kiðjabergi og Öndverðarnesi. Stutt er í alla helstu afþreyjingu, hvort heldur sem er í þéttbýli eða í faðmi náttúrunnar.



Nánari upplýsingar veitir:
Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.