Stórholt 28 , 105 Reykjavík (Austurbær)
64.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
77 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1943
Brunabótamat
31.550.000
Fasteignamat
53.000.000

Domusnova og Haukur Páll Ægisson, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Stórholt 28 íbúð 201 þriggja herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli með sameiginlegum inngangi og risi fyrir ofan hluta af íbúðinni sem nýtist sem auka geymslurými (ekki inn í fm tölu), auka stúdióherbergi er í kjallara sem er nú þegar í útleigu. Húsið var steypt árið 1943. Samkvæmt HMS er eignin skráð 77.3m² og skiptist hún eftirfarandi. Stærð íbúðar er 60.7m², geymsla í kjallara er 1.7m² og stúdióherbergi er 16.1m².

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, ris, stúdióherbergi í kjallara og lítil geymsla undir stiga. Í sameign í kjallara er að finna lítið baðherbergi með salerni og sturtuaðstöðu, þvottaherbergi, þurrkherbergi og kalda útigeymsla undir stiga.


Nánari lýsing.
Forstofa er með fatahengi og dúk á gólfi.
Stofa er björt og opin við eldhús, dúkur er á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu frá IKEA, bakarofni í vinnuhæð, helluborði í eyju og tengi fyrir bæði uppþvottavél og þvottavél.
Svefnherbergi I: Bjart með dúk á gólfi og stórum fataskáp
Svefnherbergi II: Snoturt herbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengdu salerni, sturtu, handklæðaofni, vaskaskáp og upphengdum speglaskáp.
Ris er óeinangrað en afbragðs geymslurými.

Eldhús var endurnýjað árið 2021 sett voru heimilistæki í eldhúsið ásamt því að rafmagn var tekið í gegn í eldhúsinu á sama tíma.
Baðherbergi var einnig endurnýjað 2018. Það er, flísalagt, nýtt salerni, nýr vaskaskápur og spegill ásamt nýrri sturtu og handklæðaofni.

Nánari upplýsingar veita:
Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.