Engjavík 24 , 800 Selfoss
65.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
99 m2
65.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
52.000.000

Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:

Raðhús byggt úr timbri og klætt að utan með báruáli, gluggar áltré, vindskeiðar og undirklæðning úr málaðri furu.

Seljandi er tilbúinn að lána allt að 20% fyrir aftan bankalán, Kaupandi þarf þvi enga útborgun!!

EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING

 Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Anddyri, þrjú svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi og þvottahús.

Nánari lýsing eignar:                             
Forstofa með fataskáp, harðparket á gólfi.
Stofa og eldhús í opnu alrými með aukinni lofthæð og innfelldri lýsingu,  harðparket er á gólfi og útgengt í garð þar sem gert er ráð fyrir verönd.
Eldhús með glæsilegri innréttingu, tæki sem fylgja eru innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, bakarofn í vinnuhæð og span helluborð.
Herbergin þrjú eru öll með fataskápum.  Harðparket á gólfi.
Baðherbergi með walk in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni, flísar eru á gólfi og veggjum í sturtu.
Þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvaskur í borðplötu, flísar á gólfi

Gólfhiti er í húsinu steyptur í plötu, veggir og loft læddir með gips, heilspartlað og fullmálað. Harðparket á gólfum og flísar á votrýmum, hurðar eru yfirfelldar hvítar hurðar. Aukin lofthæð og innfelld lýsing. Eldhús- og baðinnréttingar eru frá HTH.
Lagt er fyrir rafhleðslustöð á framhlið hússins.

Jórvíkurhverfið ( New York Selfoss ) er nýtt hverfi á Selfossi í göngufjarlægð frá allri helstu þjónustu á Selfossi og í námunda við einstaka náttúru suðurlandsins. Jórvíkurhverfið er blönduð byggð með fjölbýlum, raðhúsum, parhúsum og einbýlum.

Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir. 

Nánari upplýsingar veitir:

Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.