Domusnova Akranesi og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: Höfðabraut 12 **SKOÐA SKIPTI Á EINBÝLI ** Mikið endurnýjuð íbúð á 1. hæð. Einkabílastæði við aðalinngang.Björt og falleg 113 fm. 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í góðu þríbýlishúsi. Húsið er klætt að utan.
Staðsett í rólegri hliðargötu stutt frá Langasandi, íþróttasvæði og Grundaskóla.Forstofa: Flísalögð og með fataskáp.
Eldhús: Flisar á gólfi og máluð innrétting, uppþvottavél getur fylgt.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi og með fataskáp. Parket á gólfi
Svefnherbergi: parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi, sturta.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð með parketi á gólfi. Útgangur út á suður sólpall út úr borðstofu.
Sér þvottaherbergi innaf holi, flísalagt og með glugga.
Geymsla: Stór geymsla innaf forstofu með glugga.
Endurnýjað:Tvær hliðar hússins eru klæddar 2001 ( var áður búið að klæða hinar tvær).
Neysluvatnslagnir 2020
Ofnalagnir og ofnar 2020
Bárujárn á þaki 2019
Skólplögn undir öllu húsinu og út í götu að mestu 2013 og klárað 2020. Skolplögn mynduð árið 2021 og 2022.
Innihurðir 2022
Gluggar og svalahurð frá Skanva 2023-2024 Flasningar verða komnar á fyrir afhendingu eignar.
** Hússjóður stendur í rúmum 4.000.000,- og er verið að safna í svalir fyrir 2 og 3 hæð. Hússjóður 21.470 á mánuði.**
Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected] / sími 861-4644Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.