Fitjahlíð 9 , 311 Borgarnes
29.900.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
56 m2
29.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1992
Brunabótamat
18.050.000
Fasteignamat
15.800.000

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Virkilega fallegt sumarhús í landi Fitja við Skorradalsvatn með gestahúsi, tveimur geymslum og einstöku útsýni út á Skorradalsvatn.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax!

Aðalhúsið er með forstofu, tveimur svefnherbergjum, gestasnyrtingu, opnu rými með eldhúsi/borðstofu/stofu, svefnlofti yfir hálfu húsinu ásamt góðri verönd.

Gestahúsið er með einu svefnherbergi og rúmgóðu baðherbergi með sturtu.

Einnig eru tveir geymsluskúrar, um 2 fm hvor, ásamt því að hægt er að geyma undir sólpalli.

Innbú getur fylgt með skv. samkomulagi.

Lóðin er mjög gróin, virkilega falleg með trjágróðri og einnig má vera með bát á vatninu.

Húsið er í virkilega góðu viðheldi, eign sem virkilega er hægt að mæla með.

Lóðin er 2.500 fm leigulóð og er leigugjald um 110.000 kr fyrir árið 2023. Nýr eigandi fær nýjan 20 ára samning við landeigendur.

Sumarhúsafélag er á svæðinu (Fitjafélagið) og er árgjaldið í það um 10.000 kr á ári.
Einnig er gjald til vatnsveitunnar um 10.000 kr á ári.

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]
Ævar Örn Jóhannsson, í löggildingarnámi til fasteignasala
Sími: 861 8827
Netfang: [email protected]


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.