Fagrahlíð , 861 Hvolsvöllur
159.900.000 Kr.
Lóð
0 herb.
65535 m2
159.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
7
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
83.487.000
Fasteignamat
32.209.000

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Gistiheimili í Fljótshlíð í góðum rekstri með góðan húsakost, nægt jarðnæði og mikla möguleika.

Íbúðarhús með þremur íbúðum, 4ra herbergja, 3ja herbergja og stúdíóíbúð, samtals útseld svefnaðstaða fyrir 16 manns auk starfsmannaaðstöðu.

Lánamöguleikar í boði fyrir þessa eign, nánar á IMIROX.COM og bókið skoðun á [email protected]

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax!
 
Jörðin er 4,24ha og afmarkast af hnitum Fögruhlíðar ofan þjóðvegar (Fljótshlíðarvegur) og miðlínu þjóðvegar.

Jörð, ræktað land, íbúðarhús, fjárhús nýtt sem starfsmannaaðstaða og geymsla, hlaða, vélageymsla, reykhús.
 
Nánari lýsing:
Fagrahlíð, staðsett í Fljótshlíð, er fallegt 4,24ha land í Fljótshlíð með fallegu uppgerðu gistihúsi sem skipt er upp í 3 íbúðir: stúdíó íbúð, 3ja herbergja íbúð, og 4ra herbergja íbúð. Alls getur verið útseld svefnaðstaða fyrir 16 manns (auk starfsmannaaðstöðu), en er nýtt í dag fyrir 14 rúm.

Frá 2010 er þar rekin ferðaþjónusta undir nafninu Fagrahlid Guesthouse (fagrahlid.is), og er starfsemin í miklum blóma sem og sterka bókunarstöðu yfir sumartímann.

Íbúðarhúsið er í góðu viðhaldi og er að mestu leyti endurnýjað. Það er á tveimur hæðum, samtals 156,4fm, og aðrir húsakostir eru samtals um 285,8fm.

Landið liggur einstaklega vel í fagurri hlíð, umlukið fallegum trjágróðri og ræktuðum túnum. Efst í landinu er tilkomumikið útsýnissvæði sem hentar einstaklega vel til uppbyggingar á nýju hóteli, gistihúsi, þjónustumiðstöð, eða stórum sumarbústað. 

Útsýni frá Fögruhlíð er einstakt, frá Mýrdals-og Eyjafjallajökli til austurs, Vestmannaeyjar í hásuður ásamt Suðurlandsundirlendinu.  Stutt er í alla þjónustu á Hvolsvelli, um 7 km á malbikuðum þjóðvegi, með sundlaug, verslun, þjónustu, og afþreyingu fyrir ferðamenn.
 
4ra herbergja íbúð: er á efri hæð, gengið inn í forstofu, og eru í henni 3 svefnherbergi með tveimur rúmum hvert, öll með sér handlaug. Stofa, borðstofa og eldhús eru saman eitt rými. Eldhús með vandaða Bulthaup innréttingu frá Eirvík, og vönduð Siemens raftæki. Þar er uppþvottavél. Eitt baðherbergi með sturtu. Svefnpláss fyrir 6. Stórbrotið útsýni úr stofu og eldhúsi, sem og ef gengið er úr stofu út á sólpall í austur út frá stofunni, en þar er óhindrað útsýni til allra átta, og horft yfir Eyjafjallajökul, Mýrdalsjökul, og Vestmannaeyjar. Sólpallar umlykja húsið og snúa til austurs, suðurs og vesturs. Búið er að endurnýja allt utanhúss, m.a. einangra veggi, skipta um glugga og gler, og klæða með áli.Á sólpalli er heitur pottur.                                                                                                                                                              
3ja herbergja íbúð: er á neðri hæð með sér inngangi.  Í henni eru 2 svefnherbergi, annað með 2 rúmum og hitt með 2 kojum. Samtals svefnpláss fyrir 6. Stofa og eldhús í opnu rými, og baðherbergi með sturtu.
 
Stúdíó íbúð: er á neðri hæð með sér inngangi.  Alrými sem er stofa, eldhús og tvöfallt rúm, en í stofu er hægt að hafa svefnsófa fyrir 2, koju fyrir 2, eða sófa. Í dag er íbúðin nýtt með 2 svefnpláss en var áður fyrir 4.  
 
Starfsmanna aðstaða: Hluti fjárhúsa er nýttur sem starfsmannaaðstaða, svefnaðstaða, og þvottarými, auk stórrar geymslu. Þar er svefnpláss fyrir 2.
 
Útihúsin: Miklir möguleikar felast í því að gera upp fjárhúsin, hlöðuna, og vélageymslu. Í framtíðinni væri hægt að nýta þennan húsakost undir starfsemi ferðaþjónustunnar, enda liggja húsin á góðum stað við íbúðarhúsið.
 
Frekari uppbygging: hugmyndir eru um hótel/gistihús efst á jörðinni, og allt að 10 smáhýsi á grónum túnum.
 
Ferðaþjónusta er rekin í Fögruhlíð og er Fljótshlíðin einn af sögufrægustu stöðum Íslands.  Staðsetning Fögruhlíðar er einstök, enda liggur landið í gróinni og friðsælli hlíð, utarlega í Fljótshlíð, með óhindrað útsýni. Jörðin býður upp á mikla stækkunarmöguleika á sviði ferðaþjónustu. Meðal annars hefur verið samþykkt að byggja brú fyrir bílaumferð yfir Markarfljótið þannig að leið opnast yfir í Þórsmörk, Fljótshlíðarmegin. Þá er Kötlu-Jarðvangur (Katla Geopark) í mikilli uppbyggingu. Ekki er langt í Seljalandsfoss, Njáluslóð, Seljavallalaug, Skógafoss og fleiri perlur. Hvolsvöllur er orðinn umsvifamikill bær í ferðaþjónustu með Lava centre og mikla möguleika á dagsferðum upp á hálendið fyrir ferðamenn.  
 
Ótímabundið rekstrarleyfi, Gististaður: flokkur II, var gefið út 02.09.2020.
 
Það sem fylgir sölu:
Öll húsgögn (án persónulegra muna), raftæki, nafnið Fagrahlíð Guesthouse, heimasíða, aðgangur að bókunarsíðum, og almenn yfirtaka á rekstri ferðaþjónustunnar.
 
Það sem ekki fylgir sölu:
Land fyrir neðan þjóðveg fylgir ekki með Fögruhlíð, heldur tilheyrir sumarhúsabyggðinni Fagratún sem þar er ætlað að rísa í framtíðinni. Búið er að hnitsetja jörðina og verið er að skrá rétta skiptingu.

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / Sími: 899 0720 / [email protected]

Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / Sími: 820 1002 / [email protected]
Ævar Örn Jóhannsson, í löggildingarnámi til fasteignasala / Sími: 861 8827 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.