Nýbýlavegur 10 , 200 Kópavogur
59.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
61 m2
59.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
47.470.000
Fasteignamat
57.500.000

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Virkilega vel skipulagða íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi með sérmerktu stæði í bílageymslu. 

Birt stærð íbúðar er 61,6 fm skv. Þjóðskrá Íslands og er bílstæðið ekki inni í þeirri tölu.

Klikkaðu hér til að fá söluyfirlit sent strax!

Íbúðin var tekin í notkun 2020 og húsið var byggt af JÁVERK byggingarverktökum, staðsteypt hús, klætt með sléttu og báruðu áli.

Innihurðir frá Parka (hvítar), innréttingar og fataskápar frá HTH (askútlit), eldhúsinnrétting frá HTH (askútlit) og AEG tæki. Einnig eru AEG þvottvél og þurrkari á baðherbergi sem fylgja með.

Myndavéladyrasími er í anddyri og sameiginlegur garður er á annarri hæð, gegnt íbúðinni, þar sem aðstaða er bæði til leik- og útiveru.

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp (4,3 fm). Baðherbergið er til vinstri (6,6 fm), með sturtu, upphengdu salerni, vask, skápaeiningu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og veggjum.
Við hliðina á baðherberginu er mjög rúmgott svefnherbergi (11,8 fm), góður fataskápur með askútliti og gluggi út að svölum íbúðarinnar með opnanlegu fagi.
Eldhúsið er með L innréttingu, HTH innrétting, AEG tæki (Span-helluborð, ofn og gufugleypir), efri og neðri skápar ásamt plássi fyrir einfaldan ískáp. Innbyggð uppþvottavél er í innréttingunni sem fylgir með.
Stofan er rúmgóð, stór bjartur gluggi og útgengt út á svalir. Parket er á öllum gólfum utan baðherbergis, þar eru flísar.
Í kjallara er sérgeymsla (4 fm) og sérmerkt bílastæði. Hjóla og vagnageymsla í sameign.
Íbúðin er einstaklega vel staðsett við Nýbýlaveginn, Bónus og bakarí við hliðina á húsinu, fjöldi matsölustaða á sama bletti og einnig alla helstu þjónustu að finna í Hamraborg, leikskólar og skólar í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali.
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.