Ljósavík 24 , 112 Reykjavík (Grafarvogur)
74.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
105 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2000
Brunabótamat
53.250.000
Fasteignamat
67.200.000

EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN OG OPNA HÚSIÐ Í DAG FELLUR NIÐUR AF ÞEIM SÖKUM.


Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Rúmgóða þriggja herbergja íbúð með sérinngangi, í litlu fjölbýli með einkabílastæði og einstöku útsýni í Grafarvogi.

Íbúðin er á annarri hæð, gengið inn af utanáliggjandi stigagangi/svölum, sérmerkt bílastæði fylgir á bílaplani og birt stærð er 105,1 fm.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax!

Helstu gæði eignar eru tvö rúmgóð svefnherbergi, sér þvottahús, rúmgott alrými með einstöku útsýni, sérinngangur og einkabílastæði.

Nánari lýsing á eign:
Forstofa - með fataskáp og flísum á gólfi.
Þvottahús - er inn af forstofu, innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi og gluggi með opnanlegu fagi.
Baðherbergi - með innréttingu, vaski, salerni, baðkari með sturtu og flísum á gólfi.
Hjónaherbergi - mjög rúmgott með fataskápum á heilum vegg og parketi á gólfi.
Aukaherbergi - mjög rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús - er með stórri innréttingu á gagnstæðum veggjum og miklu geymsluplássi, pláss i innréttingu fyrir einfaldan ísskáp, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð og bakaraofn ásamt gufugleypi, parket á gólfi.
Stofa/Borðstofa - með miklum og björtum gluggum, einstöku útsýni upp á Snæfellsnes á björtum dögum, útgengt á góðar svalir og parket á gólfi.
Geymsla - er í kjallara 7,4 fm að stærð.
Bílastæði - er sérmerkt á bílaplani framan við húsið.

Aðgengi er að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í kjallara. Sameign og hús virðist hafa fengið jafnt og gott viðhald í gegnum tíðina.

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.